Gjafabréf
Gefðu píanótíma í jólagjöf
Undanfarin ár hafa gjafabréfin verið nokkuð vinsæl í jólapakkann.
Hvert gjafabréf inniheldur 7 píanótíma, en hver tími er 30 mínútur að lengd.
Allt eru þetta einkatímar og tímasetningar eru eftir samkomulagi.
Tilvalin gjöf fyrir þá sem hafa alltaf langað til þess að læra en aldrei stigið skrefið. Einnig hafa margir nýtt þessa tíma til upprifjunar.
Endilega hafið samband hér
Verð 42.000 kr
Umsagnir
Hvað segja nemendur?
„Örvar hefur hjálpað mér að láta forvitnilegan áhuga að læra á píanó blómstra í sannkallað ástfóstur á þessu hljóðfæri. Æfingar eru hnitmiðaðar í því að skila bæði árangri og áhuga á að læra meira. Mæli hjartanlega með píanótímum hjá Örvari.“
„Ég ákvað fyrir nokkrum árum að skella mér í nokkra píanótíma til að geta spilað örfá lög skammlaust á píanó. Ég fór í tíma hjá Örvari Inga Jóhannessyni. Ég er enn að velta því fyrir mér hvað í ósköpunum mér gangi til með þessu þrátt fyrir…“ Lesa meira
„Ég ákvað fyrir nokkrum árum að skella mér í nokkra píanótíma til að geta spilað örfá lög skammlaust á píanó. Ég fór í tíma hjá Örvari Inga Jóhannessyni. Ég er enn að velta því fyrir mér hvað í ósköpunum mér gangi til með þessu þrátt fyrir að árin hafi liðið og ég hafi lært að spila fleiri lög og fjölbreyttari á píanóið en mig óraði nokkru sinni fyrir. Mér finnst líklegt að ég muni velta þessu fyrir mér um langa hríð enn vegna þess að ég er ekkert að hætta að læra á píanó, líklega hætti ég því bara aldrei. Kennslan hjá Örvari hefur breyst með aukinni færni hjá mér, við höfum alltaf haft skemmtileg viðfangsefni og ég hlakka alltaf til þess að mæta í tíma. Örvar er natinn og góður kennari, duglegur við að setja sig á þann stað sem nemandinn er á og vinna út frá því. Sumt verður maður auðvitað að læra og ég er stundum alveg undrandi á því hvað Örvari hefur tekist að fá mig til að læra.“
„Úrvals píanókennari - vandvirkur, faglegur og þolinmóður.“
„Gylfi Bergur sonur minn hefur verið í einkatímum hjá Örvari síðastliðin 2 ár. Á þessum tíma hefur Gylfi sýnt miklar framfarir. Lagavalið er mjög fjölbreytt og Gylfi er mjög ánægður með kennsluna. Ég get hiklaust mælt með Örvari.“
Hafðu samband
Sendu skilaboð
Spurningar um tíma, verð eða gjafabréf? Skrifaðu mér línu og ég svara eins fljótt og ég get.